Íslenski safnadagurinn sunnudaginn 8. júlí

6.07.2012

Eins og venja er til verður sérstök dagskrá í safninu frá kl. 14.00. Sýnt verður hvernig tekið var ofan af, kembt, spunnið og prjónað.

Einnig sýndur margskonar útsaumur, auk þess heklað og gimbað og slegið í vef. Gestum gefst kostur á að spreyta sig á viðkomandi vinnubrögðum.

Kaffi og kleinur verður innifalið í aðganseyri á safnadaginn.