Íslenski Safnadagurinn í Heimilisiðnaðarsafninu!
Eins og venja er til mun næstkomandi sunnudag frá kl. 14.00 vera sérstök dagskrá í safninu á íslenska Safnadeginum. Sýnt verður hvernig tekið var ofan af, kembt, spunnið og prjónað. Einnig sýndur margskonar útsaumur, auk þess heklað, gimbað og slegið í vef. Gestum gefst kostur á að spreyta sig á viðkomandi vinnubrögðum.
Vakin er athygli á Sumarsýningu safnsins “Sporin mín” eftir Þórdísi Jónsdóttur – heillandi sýning.
Aðgangseyrir er kr. 900 en kr. 700 fyrir eldri borgara, öryrkja og hópa. Ókeypis fyrir 16 ára og yngri.
Innifalið í aðgangseyri er kaffi ásamt smakki af bóndakökunum góðu sem algengar voru á kaffiborðum landsmanna hér áður fyrr.