Íslenska lopapeysan

9.11.2014

Rannsóknarverkefnið um tilurð íslensku lopapeysunnar sem Heimilisiðnaðarsafnið, Hönnunarsafn Íslands og Gljúfrasteinn standa fyrir, gengur mjög vel. Ásdís Jóelsdóttir, lektor við Menntavísindadeild Háskóla Íslands, sem vinnur að verkefninu,  hefur viðað að sér miklu af gögnum hjá söfnum og stofnunum og átt viðtöl við fjölmarga einstaklinga meðal annars við margar íslenskar prjónakonur sem muna tímana tvenna. Á dögunum heimsótti Ásdís Heimilisiðnaðarsafnið og rannsakaði gamlar peysur sem varðveittar eru í safninu. Ljóst er að mjög skýr tengsl er á milli munsturgerðar gamalla íslenskra vettlinga og “lopapeysunnar”. Á meðfylgjandi mynd má sjá grænlenska treyju og gamla peysu  þar sem hluta munsturgerðarinnar svipar saman. Greinilega er að mörgu að hyggja í þessu spennandi verkefni.