Stofutónleikar á sunnudaginn

19.08.2015

Næstkomandi sunnudag kl. 15:00 verða stofutónleikar Tríó Kalinka í Heimilisiðnaðarsafninu.

Tríó Kalinka skipa þau Gerður Bolladóttir, sópran, Flemming Viðar Valmundarson, harmonikkuleikari og Marin Shulmina sem spilar á domra sem er sérstakt rússneskt hljóðfæri.

Efnisskrá þeirra er fjölbreytt, íslensk og rússnesk þjóðlög og fjörugir dansar bæði frá Íslandi og Rússlandi.
Tríó Kalinka hefur komið víðsvegar fram við afar góðar undirtektir áheyrenda.
Eftir tónleikana verður kaffi á könnunni og smá meðlæti.

Aðgangseyrir safnsins gildir. Allir hjartanlega velkomnir!