Opnun sumarsýningar

25.05.2017

Sunnudaginn 28. maí, kl. 15:00 verður opnuð sýningin Prjónað af fingrum fram.

Sýningin er samstarfsverkefni Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi, Heimilisiðnaðarfélags Íslands og Kristínar Schmidhauser Jónsdóttur sem er höfundur samnefndar bókar um Aðalbjörgu Jónsdóttur. Aðalbjörg sem varð 100 ára þ. 15. des. sl. mun ásamt dóttur sinni Ragnhildi Hermannsdóttur, opna sýninguna og Íris Árnadóttir langömmubarn Aðalbjargar mun syngja við opnunina.

Í tilefni dagsins eru konur sem eiga handprjónaða kjóla hvattar til að draga þá fram í dagsljósið og klæðast þeim.

Eftir opnunina verður viðstöddum boðið upp á kaffi og tilheyrandi.

Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.