Fyrirlestrar nk. laugardag

26.10.2021

Fyrirlestrar í Heimilisiðnaðarsafninu laugardaginn 30 október kl: 14:00

Jón Torfason, mun flytja fyrirlesturinn “Saga af sulli”. Þar er
rakin saga ungs manns frá ofanverðri 19. öld sem veiktist af sullaveiki.
Fyrirlesturinn byggir á rannsókn þar sem fetað var í slóð hins unga
manns.

Sigríður Sigurðardóttir, fyrrum safnvörður Byggðasafnsins í Glaumbæ,
flytur fyrirlestur um “Þrif í torfbæjum”. Hér er fjallað um
þrifanaðarhætti á torfbæjartímum. Skoðað hvernig torfhús voru þrifin,
hvernig fataþvottar fóru fram og hvernig fólk þreif sjálft sig.
Fyrirlesturinn byggir á riti Sigríðar frá árinu 2016.

Góðir og fróðlegir fyrirlestrar sem segja má að kallist á og vert er á að hlýða.

Að þeim loknum kaffi og spjall.
Aðgangur ókeypis.