Starfsstefna safnsins hefur að leiðarljósi þau markmið sem Heimilisiðnaðarsafnið hefur sett sér eftir því sem fjármunir leyfa og felst í eftirfarandi:
- Söfnun. Söfnunarstefna safnsins er sett samhliða starfsstefnu og sýningarstefnu í samræmi við safnalög. Þar er kveðið á um söfnun, skráningu, varðveislu, fræðslu og rannsóknir.
- Sýningar.Sýningarstefna safnsins er sett samhliða starfsstefnu og söfnunarstefnu í samræmi við safnalög. Markmið sýninga er að miðla fræðslu, skapa upplifun og hughrif um líf þjóðarinnar frá liðnum tímum.
- Opnunartími. Safnið er opið alla daga í júní, júlí og ágúst frá kl. 10 - 17. Auk þess er komið til móts við gesti á öðrum tímum árs eftir samkomulagi. Sérstök áhersla er lögð á að taka á móti nemendum af öllum skólastigum allt árið.
- Aðstaða – aðgengi – þjónusta. Í safnahúsinu er sýningarými, skrifstofuaðstaða, geymslurými og vinnurými auk fullkomins öryggiskerfis og brunavarnakerfis. Aðgengi er fyrir alla safngesti að sýningarrýmum, kaffirými og snyrtingum sem uppfylla þarfir hreyfihamlaðra og fatlaðra.
- Sérstök áhersla verður lögð á:
- Samræmingu á skráningu á safnkosti og tengingu við gagnagrunn Sarps.
- Eflingu fræðilegra rannsókna í safninu, auk málþinga og námskeiðahalds.
- Fullnægjandi viðhald á safnhúsinu bæði utan- og innandyra. Þar með talin yfirferð á safnmunum og regluleg þrif á húsnæði og safnmunum eftir því sem þörf krefur.
- Sýningarrými gamla hússins verði bætt.
- Stöðuga miðlun upplýsinga á vefsíðu safnsins www.textile.is og samfélagsmiðlum um fræðslu-, útgáfu- og markaðsstarf.
Samþykkt af stjórn Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi
1. nóvember 2023