Heimilisiðnaðarsafnið í sumarbúning!

1.06.2020

Við sumaropnun Heimilisiðnaðarsafnsins er ævinlega boðið upp á nýja sérsýningu. Í þetta sinn eru það Arkir bókverkahópur, sem telur 11 íslenskar listakonur sem standa að sýningunni Spor í safninu. Nokkrar erlendar listakonur eiga einnig verk á sýningunni en þær eiga það sameiginlegt að hafa dvalið á Textíllistamiðstöð í Kvennaskólanum á Blönduósi.

Nafn sýningarinnar vísar til nýrra “Spora” sem má ef til vill rekja til troðinna slóða, rótgróinna aðferða og leiða í íslensku textílhandverki að fornu og nýju. Nokkur verkanna hafa beina skírskotun til muna Heimilisiðnaðarsafnsins, vísa til minninga fyrri kynslóða, textílhefða, útsaums,  vefnaðar, jurtalitunar, auk þess að vera innblásin af náttúru Íslands, menningu kvenna og sögu. “Hvað tjáir bók án orða?”

Sjaldgæft er að listgreinar á borð við bóklist og textíllist tvinnist saman en hér ná listakonurnar að nýta sér tækni og aðferðir textíllista við bókverkagerð og sameina þannig myndlist, hönnun og handverk.

Enn á ný býður Heimilisiðnaðarsafnið gestum sínum upp á nýja sérsýningu. Allar sýningarnar hafa verið afar ólíkar frá ári til árs og aukið við fjölbreytileika í sýnigarflóru safnsins. Þessi sýning sem er einstaklega falleg mun veita safngestum nýja og fjölbreytta sýn á margskonar handíð og hve óendanlega er hægt að nýta safnkostinn sem uppsprettu hugmynda að nýrri nálgun til ólíkra verka.

Vegna sérstakra aðstæðna er ekki hægt um þessar mundir að opna sýninguna formlega en vonir standa til að það verði gert síðar í sumar.

Sýningin er opin á opnunartíma safnsins.

Heimilisiðnaðarsafnið er nú opið alla daga frá kl. 10:00-17:00 fram til 31. ágúst og eftir það er opnað fyrir hópa eftir samkomulagi.