Menningarráð afhendir styrki

1.05.2012

Á dögunum hélt Menningarráð Norðurlands vestra úthlutunarhátíð í Félagsheimilinu Ljósheimum í Skagafirði þar sem fram fór afhending styrkja ársins 2012.

Heimilisiðnaðarsafnið hlaut styrki að upphæð samtals kr. 300.000,- til tveggja verkefna, Þjóðbúningasýningar á Húnavöku og Sumarsýningar ársins 2012.

Heimilisiðnaðarsafnið þakkar Menningarráði veittan stuðning.

Á meðfylgjandi mynd má sjá Þóru Sverrisdóttur, taka við styrkjunum fyrir hönd Heimilisiðnaðarsafnsins.