Líflegt á þjóðbúningasýningu

24.07.2012

Heimilisiðnaðarsafnið fylltist af fólki og andi liðinna tíma leið yfir vötnum þegar þjóðbúningasýning var haldin í safninu á Húnavöku. Oddný Kristjánsdóttir klæðskeri og sérfræðingur í íslenska þjóðbúningnum kynnti íslenska þjóðbúninginn og þær breytingar sem hann hefur tekið í gegnum tíðina m.a. vegna áhrifa af tískustraumum erlendis frá. Börn og fullorðnir sýndu búningana og gengu um á meðal gestanna sem gæddu sér jafnframt á kaffi og kleinum í boði safnsins.

Myndir frá deginum eru komnar inn á myndasafn síðunnar.