Rykfallin geymsla eða virk menningarstofnun?

8.10.2012

 

 

“Rykfallin geymsla eða virk menningarstofnun” var yfirskrift á fyrirlestri sem Elín S. Sigurðardóttir, forstöðumaður, flutti á Ísafirði 6. október síðastliðinn. Fyrirlesturinn var fluttur í tengslum við sýningu á verkum Þórdísar Egilsdóttur, handíðakonu, sem staðið hefur á Gamla sjúkrahúsinu undanfarnar vikur.

Um 40 manns sóttu fyrirlesturinn og var gerður góður rómur að.