Frábærir stofutónleikar að baki

18.03.2014

Frábærir tónleikar og yndisleg upplifun á Stofutónleikum Heimilisiðnaðarsafnsins sem fram fóru sl. sunnudag. Það má segja að þau Ellen og Eyþór hafi heillað tónleikagesti með tónlistarflutningi og einstakri nærveru.

Inn á milli laga var spjallað og slegið á létta strengi og vegna nálægðarinnar myndaðist góð og lifandi stemmning.

Um 50 manns sóttu tónleikana og þáðu kaffi og meðlæti að þeim loknum.