Sumarsýning Heimilisiðnaðarsafnsins

25.05.2014

“Sporin mín” útsaumssýning Þórdísar Jónsdóttur, listakonu frá Akureyri, verður opnuð fimmtudaginn 29. maí (Uppstigningardag) kl. 14.00.

Móheiður Guðmundsdóttir, syngur nokkur lög við undirleik Guðmundar Árnasonar og Jóns Heiðars Sigurðssonar.

Eftir opnunina verður að vanda boðið upp á kaffi og kleinur.

Allir velkomnir – aðgangur ókeypis.