“Íslenskt prjón” komin út

26.11.2014
Bókin “Íslenskt prjón” eftir Héléne Magnússon er komin út á íslensku. Á síðastliðnu ári var bókin gefin út í Bandaríkjunum undir heitinu Icelandic Handknits. Bókin byggir á rannsóknarvinnu Héléne Magnússon á prjónafatnaði í Heimilisiðnaðarsafninu.
Bókin er vönduð og prýdd afar fallegum myndum – aðfararorð – ágrip af sögu Heimilisiðnaðarsafnsins eru rituð af Elínu S. Sigurðardóttur, forstöðukonu safnsins. Sérsýning Heimilisiðnaðarsafnsins 2013 tengdist útgáfu þessarar bókar.
Á baksíðu bókarkápu segir: “Íslenskt prjón sækir innblástur í prjónafatnað og annan klæðnað og muni sem varðveittir eru á Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi. Flíkur og munstur frá seinni hluta 19. aldar og fram á fyrri hluta 20. aldar eru hér færð í nútímabúning og með því íslenska ullargarni sem framleitt er í dag”.
Bókin er gott dæmi um þann frjóa jarðveg sem er að finna í safninu til sköpunar á nýju handverki.