Menningararfur – skiptir hann þig máli?

22.02.2016

Ef svarið er já, þá átt þú erindi á þennan umræðufund um óáþreifanlegan menningararf og kynningu á sáttmála UNESCO um verndun hans.

Föstudaginn 26. febrúar kl. 12:00 í Eyvindarstofu verður haldinn umræðufundur um óáþreifanlegan menningararf (menningarerfðir) og kynning á sáttmála UNESCO um verndun hans.

Menningarerfðir eru til dæmis þekking og kunnátta sem tengist reykingu, söltun og súrsun matvæla, hestamennsku, sauðfjárbúskap, vefnaði, kveðskap, þjóðdansi, þorrablótum, þjóðbúningum, útskurði og eggjatöku; að kæsa hákarl, smíða trébát og vinna með ull.

Fundurinn er í tengslum við verkefni á vegum menntamálaráðuneytinsins og er markmiðið að

  • koma af stað umræðu um menningarerfðir
  • fá hugmyndir um menningarerfðir sem fólkinu í landinu finnst mikilvægt að vernda
  • fá upplýsingar um félög / hópa sem starfa á sviði menningarerfða
  • kynna sáttmála UNESCO um verndun menningarerfða en lykilatriði hans er að við sem landið byggjum segjum til um hvað eru menningarerfðir okkar og hvernig best sé að vernda þær.

Súpa og brauð selt á staðnum á kr. 1.500,-

Guðrún Ingimundardóttir,
verkefnisstjóri