Bókakynningar á aðventunni
Eins og undanfarin ár voru haldnar bókakynningar í Heimilisiðnaðarsafninu nú á aðventunni. Miðvikudaginn 7. desember var lesið upp úr fjórum bókum:
- Þessi kona – höfundur Guðríður B. Helgadóttir, kynnti og las.
- Í nýjum heimi – höfundur Jóhanna Kristín Atladóttir, kynnti og las.
- Þórdís Spákona – höfundar Dagný Marín Sigmarsdóttir, Svava G. Sigurðardóttir og Sigrún Lárusdóttir, Dagný kynntu og lásu.
- Nokkur lauf að norðan ll – Birgitta H. Halldórsdóttir las smásögu og kynnti útgáfu Töfrakvenna.
Þá var haldin sérstök bókakynning miðvikudaginn 14. desember þar sem lesið var upp úr nýjum barnabókum:
- Fangarnir í trénu – höfundur Harpa Dís Hákonardóttir. Kristín Guðjónsdóttir kynnti og las.
- Ævintýri tvíburanna – höfundur Birgitta Hrönn Halldórsdóttir kynnti og las.
- Saga úr Síldarfirði – höfundur Örlygur Kristfinnsson. Kolbrún Zophoníasdóttir, kynnti og las.
Eftir upplesturinn þáðu gestir veitingar í boði safnsins, ásamt því að höfundar árituðu og seldu bækur sínar.